141. löggjafarþing — 1. fundur,  11. sept. 2012.

tilkynning um stjórnir þingflokka.

[16:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur eftirfarandi tilkynning um breytingu á stjórn þinghóps Hreyfingarinnar:

Margrét Tryggvadóttir er formaður, Birgitta Jónsdóttir varaformaður og Þór Saari ritari. Jafnframt tilkynnist að Þór Saari er formaður Hreyfingarinnar.

Borist hefur eftirfarandi tilkynning um breytingu á stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokksins:

Illugi Gunnarsson er þingflokksformaður.

Borist hefur eftirfarandi tilkynning um breytingu á stjórn þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs:

Álfheiður Ingadóttir er formaður, Árni Þór Sigurðsson varaformaður og Lilja Rafney Magnúsdóttir ritari.