141. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2012.

orð ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma o.fl.

[14:11]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Það voru mjög margar beiðnir um fyrirspurnir til ráðherra, enda er þetta fyrsti fyrirspurnatíminn á þessu þingi. (Gripið fram í: Hversu margar?) Það voru tíu en fimm komust að og það er farið eftir ákveðinni reglu, sem þingmenn þekkja, (Gripið fram í: Hvaða?) um það hvernig menn forgangsraða fyrirspurnum.