141. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2012.

íþróttalög.

111. mál
[17:57]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Ég skal bara vera snögg að þessu. Mig langaði að spyrja hvort ráðherrann vissi hvort fyrirstaða væri innan ÍSÍ gagnvart því að stækka hópinn, bæta við íþróttagreinum sem eru svona sprotaíþróttagreinar, ef við notum orðfæri úr öðrum geirum, eða hvort þær íþróttagreinar sæki hugsanlega ekki um aðild að ÍSÍ út af lyfjaprófunum.