141. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2012.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

145. mál
[15:37]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Hér er um að ræða frestun á gildistöku og það er auðvitað leitt að ekki sé búið að klára þá forritunarvinnu sem nauðsynleg var til að hægt væri að hefja starfsemi samkvæmt nýju lögunum. Við munum ekki leggjast gegn því að málið fari hér í gegn en ég mun sitja hjá við afgreiðslu þess.