141. löggjafarþing — 13. fundur,  27. sept. 2012.

Farsýslan, stjórnsýslustofnun samgöngumála.

133. mál
[14:50]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú erum við komin út í umræðu sem er viðamikil og á vissulega rétt á sér í stærra samhengi. En hér erum við að fjalla um mál sem hefur fengið mjög góða skoðun á þinginu. Ég veit að ekki eru allir á eitt sáttir um þetta eins og jafnan þegar ráðist er í stofnanabreytingar eða kerfisbreytingar en ég legg áherslu á að málið komi sem allra fyrst til afgreiðslu og atkvæðagreiðslu í þinginu.