141. löggjafarþing — 13. fundur,  27. sept. 2012.

áfengislög.

134. mál
[16:41]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kem nú einvörðungu upp til að taka undir með hv. þingmanni. Við þurfum að fá niðurstöðu sem fyrst. Við erum búin að ræða málið í rauninni í rúman áratug. Við höfum aldrei fengið niðurstöðu í málið. Ég vona að það eigi við um þetta mál eins og ég áður gat um varðandi lífsskoðunarfélögin að það frumvarp komi sem fyrst til afgreiðslu í þinginu þannig að ákvörðun þingsins og afstaða þingmanna komi í ljós.