141. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2012.

hamingjuóskir.

[15:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Áður en gengið er til dagskrár vill forseti, fyrir hönd Alþingis og okkar alþingismanna, færa forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, innilegar hamingjuóskir með sjötugsafmæli hennar 4. október sl. Það hefur sjaldan borið við að hinn pólitíski forustumaður þingsins fagni svo göfugu afmæli í embætti en þó hefur svo gerst tvívegis síðustu hálfa öld. Er forsætisráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, þar í ágætum selskap.

Ég óska henni og fjölskyldu hennar velfarnaðar á þessum tímamótum.