141. löggjafarþing — 17. fundur,  11. okt. 2012.

fundaraðstaða þingmanna utan flokka.

[13:35]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U):

Virðulegi forseti. Ég er komin hingað í ræðustól til að vekja athygli hæstv. forseta á því að fundarherbergi þingmanna utan þingflokka er ekki nema 5 fermetrar. [Hlátur í þingsal.] Það er alveg ljóst að eftir að fjölgaði í hópi þingmanna utan þingflokka komumst við ekki fyrir í fundarherberginu. Ég hvet því hæstv. forseta til að gera bragarbót á fundaraðstöðu þingmanna sem allra fyrst. (Gripið fram í: Þið megið bara koma …) [Kliður í þingsal.]