141. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2012.

störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Í Fréttablaðinu í dag er að finna tvær greinar sem varða málefni tiltölulega stórs hóps Íslendinga, gríðarlega hagsmuni sem varða greiðsluþátttöku í lyfjum vegna fullorðinna með ADHD. Af texta fjárlagafrumvarpsins má skilja það sem svo að hætta eigi slíkri niðurgreiðslu. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef frá velferðarráðuneytinu er ekki um slíkt að ræða og mun velferðarnefnd á morgun fara yfir þetta mál með ráðuneytinu. Margir þeirra fullorðnu einstaklinga sem taka lyf við ADHD-sjúkdómnum hafa með lyfjatöku öðlast nýtt líf og algjörlega nýjar forsendur til að takast á við þau verkefni sem fyrir flest fólk er auðvelt að takast á við án lyfjanotkunar.

Í þessum hópi eru meðal annars einstaklingar sem hafa dottið út úr skóla einhvern tímann á skólagöngunni og þurft að berjast við að byggja sig upp eftir fullkomið niðurbrot vegna þess að án greiningar voru þessir einstaklingar taldir vandræðagemlingar og fengu ekki að njóta þeirra hæfileika sem þeir búa yfir fyrr en þeir fengu lyf.

Við í velferðarnefnd tökum hagsmuni þessa hóps mjög alvarlega. Við munum fjalla um þetta mál á fundi á morgun og ég er sannfærð um að við fáum sömu svör og ég hef þegar fengið, að ef berjast á gegn misnotkun lyfja á ekki að beina baráttunni að þeim sem á grundvelli greiningar fá þessi lyf niðurgreidd heldur þeim læknum sem ávísa þessum lyfjum ranglega til þeirra sem þurfa ekki á þeim að halda.