141. löggjafarþing — 29. fundur,  5. nóv. 2012.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[15:08]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dags. 26. október sl., hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd, samanber ákvæði 2. mgr. 5. töluliðar 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sértekjur A-hluta ríkissjóðs.

Jafnframt hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, með bréfi, dags. 31. október sl., að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárhags- og mannauðskerfið.