141. löggjafarþing — 29. fundur,  5. nóv. 2012.

vegarstæði um Gufudalssveit.

[15:34]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er mikilvægt að fá lyktir í þetta mál en svo ég sé alveg nákvæmur í framsetningu þá lít ég ekki svo á að lausnin liggi endilega fyrir innan fáeinna vikna. Matsáætlun Vegagerðarinnar verður skotið til Skipulagsstofnunar innan fáeinna vikna og þar fer hún í athugun og síðan á ákvörðunartakan eftir að hafa sinn gang. En ég ítreka að við vinnum að sjálfsögðu markvisst að því að fá lyktir í málið.