141. löggjafarþing — 30. fundur,  6. nóv. 2012.

kosning 5. varaforseta í stað Álfheiðar Ingadóttur, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa.

[14:07]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Mér hefur borist ein tilnefning, um 5. þingmann Reykjavíkurkjördæmis norður, Árna Þór Sigurðsson. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Árna Þór Sigurðsson réttkjörinn sem 5. varaforseta Alþingis. Ég óska honum til hamingju með kosninguna og allra heilla í starfi.