rannsókn á einkavæðingu banka.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Það er í rauninni ákaflega óheppilegt að rannsóknarnefnd Alþingis, hin stóra, komst ekki til þess að rannsaka tvo mikla áhrifaþætti í aðdraganda hrunsins, annars vegar hlut fjölmiðla og akademíunnar í hruninu og hins vegar einkavæðingu bankanna. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Það er eins og opið sár í allri pólitískri umræðu á Íslandi. Við erum ekki að tala um einhverja einkavæðingu heldur einkavinavæðingu, mjög grófa, sem byggðist á helmingaskiptareglu stjórnmálaflokka og stjórnarflokka sem höfðu verið við völd árum og jafnvel áratugum saman. Það skiptir gríðarlega miklu máli að ljúka þessu máli. Ég tek undir það sem hann hefur sagt í þeim efnum.