141. löggjafarþing — 35. fundur,  15. nóv. 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 290, um starfsemi skilanefnda, frá Kristjáni Þór Júlíussyni. Ástæður tafarinnar eru miklar annir. Því er þess farið á leit við forseta Alþingis að atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra verði veittur frestur til 29. nóvember næstkomandi til að svara fyrirspurninni.