141. löggjafarþing — 35. fundur,  15. nóv. 2012.

fjáraukalög 2012.

153. mál
[11:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Björn Valur Gíslason) (Vg):

Forseti. Ég flyt framhaldsnefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar fyrir 3. umr. við frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2012. Nefndin fjallaði um málið á einum fundi eftir atkvæðagreiðslu við 2. umr. og leitaði skýringa hjá fjármálaráðuneytinu á breytingum á fjárheimildum.

Meiri hlutinn gerir breytingartillögu við sundurliðun 2 sem nemur alls 88 millj. kr. til hækkunar gjalda. Á rekstrargrunni verða því heildartekjur ársins rúmir 529 milljarðar á móti heildargjöldum upp á 555 milljarða.

Meiri hlutinn gerir einnig breytingartillögu við 4. gr. frumvarpsins, þ.e. 6. gr. fjárlaga, þar sem lagt er til að ráðherra geti heimilað Seðlabanka Íslands að afhenda hlut Íslands vegna hagnaðar af gullsölu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að fjárhæð 305 þús. SDR til sjóðs sem er á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og er ætlaður til að hjálpa efnaminni aðildarríkjum að ná markmiðum sínum um að draga úr fátækt og efla vöxt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur farið fram á að aðildarríkin annaðhvort afhendi umræddan hlut eða greiði samsvarandi fjárhæð til sjóðsins.

Þá gerir meiri hlutinn einnig tillögur um breytt númer og heiti fjárlagaliða og tilfærslu þeirra í samræmi við breytta skipan Stjórnarráðsins, samanber ályktun Alþingis frá 11. maí sl. Ályktunin studdi fyrirhugaða breytingu á fjölda og heitum ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands í því skyni að gera Stjórnarráðið öflugra og skilvirkara og skerpa og skýra verkaskiptingu á milli ráðuneyta. Forsetaúrskurður um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti var gefinn út 30. ágúst sl. Breytingarnar fela í sér að í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Með þessum breytingum hefur ráðuneytum fækkað úr tólf í átta í tíð núverandi ríkisstjórnar. Tillögurnar miða að því að laga framsetningu á fjárveitingum fjárlaga að fækkun ráðuneyta og tilfærslu stofnana og verkefna undir ný ráðuneyti.

Virðulegur forseti. Þær breytingartillögur sem meiri hluti fjárlaganefndar leggur til við 3. umr. eru sem hér segir:

Í fyrsta lagi er lagt til að fjárheimild æðstu stjórnar ríkisins verði aukin um 17 millj. kr. Í fjárlögum fyrir árið 2012 voru veittar 25 millj. kr. til lokaáfanga fornleifarannsókna á Alþingisreit. Verkið reyndist umfangsmeira en ráð var fyrir gert og nú þegar lokauppgjör liggur fyrir stefna útgjöldin í að verða um 42 millj. kr. Ákveðið var að ljúka framkvæmdum á árinu þar sem frestun verkloka hefði haft í för með sér að elstu minjarnar væru í eyðileggingarhættu ef svæðinu hefði ekki verið lokað.

Í öðru lagi er gerð tillaga um að fjárheimild Fiskistofu verði hækkuð um 40 millj. kr. til að standa undir kostnaði Fiskistofu við álagningu og innheimtu veiðigjalda. Þessi tillaga er í samræmi við kostnaðarmat sem fylgdi frumvarpi til laga um veiðigjöld sem lagt var fyrir Alþingi í mars sl. Undirbúningur Fiskistofu hófst strax við gildistöku laganna og hefur í för með sér að fjölga þarf um að minnsta kosti fjóra sérfræðinga, m.a. á sviði lögfræði og reikningshalds. Gert er ráð fyrir að laun og annar starfstengdur kostnaður vegna þessa verði um 40 millj. kr. á ársgrunni en því til viðbótar fellur til á yfirstandandi ári ýmis einskiptiskostnaður, m.a. vegna upplýsingakerfa og ráðgjafarvinnu.

Í þriðja lagi er gerð tillaga um að fjárheimild Bjargráðasjóðs verði hækkuð um 120 millj. kr. með millifærslu af fjárlagalið 09-989-1.90 Ófyrirséðum útgjöldum hjá fjármálaráðuneytinu. Ljóst er að mikið tjón varð vegna óveðursins á Norðurlandi í september sl. Bjargráðasjóði ber samkvæmt lögum að bæta tjónið en hann hefur ekki tök á því nema með auknu fjármagni í sjóðinn. Búið er að meta tjónið sem varð í óveðrinu en fé fennti í kaf og drapst og girðingar brotnuðu og eyðilögðust vegna snjóþunga. Þá liggur fyrir að vegna langvarandi þurrka í fyrrasumar er heyforði í lágmarki víða á svæðinu og heykaup því fyrirsjáanleg þar sem fé er komið á gjöf mun fyrr en gerist í eðlilegu árferði. Heildartjónið er metið á tæpar 143 millj. kr. Ekki er gert ráð fyrir að Bjargráðasjóður þurfi að bæta það allt þar sem fyrirhugað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum sem heimilar gæðastýringargreiðslur út á tapað innlegg. Þær greiðslur eru áætlaðar um 15 millj. kr. og kæmu til frádráttar bótaþörf Bjargráðasjóðs. Jafnframt er gert ráð fyrir að Bjargráðasjóði verði heimilt að nýta umframfé sem sjóðurinn fékk vegna eldgosanna á Suðurlandi.

Í fjórða lagi er gerð tillaga um að fjárheimild liðar í velferðarráðuneytinu, liðarins Sjúkrahús, verði hækkuð um 31 millj. kr. til viðbótar þeim 30 milljónum sem veittar voru við 2. umr. fjáraukalaga vegna aðgerða sem Landspítalinn hefur gert á konum með ígrædda PIP-púða. Safnliðurinn hefur verið nýttur til að greiða fyrir kostnað vegna aðgerðanna og er tillögunni ætlað að gera það kleift að fjárheimildir liðarins til annarra verkefna verði óskertar.

Í fimmta lagi og tengt því sem ég nefndi áðan um Bjargráðasjóð er gerð tillaga um millifærslu af lið fjármálaráðuneytisins yfir á Bjargráðasjóð til að mæta því tjóni sem varð í óveðrinu á Norðurlandi í september.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef farið yfir og skýrt og gerðar hafa verið tillögur um á sérstökum þingskjölum.

Undir þetta nefndarálit skrifa auk þess sem hér stendur Valgerður Bjarnadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Björgvin Guðni Sigurðsson og Skúli Helgason.

Nú þegar komið er að lokum umræðu um fjáraukalagafrumvarpið vil ég þakka þeim nefndarmönnum sem hafa unnið að því í fjárlaganefnd og unnið ágætt starf við að búa frumvarpið svo til umræðu og afgreiðslu sem ég tel til sóma, og auk þess starfsmönnum þingsins og sérstaklega fjárlaganefndar sem hafa sömuleiðis lagt hönd á plóginn við að útbúa frumvarpið hér til afgreiðslu.