141. löggjafarþing — 38. fundur,  20. nóv. 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 280, um greiðslu fasteignagjalda til sveitarfélaga, frá Einari K. Guðfinnssyni. Ástæður tafar eru umfang fyrirspurnarinnar og flókin úrvinnsla gagna. Í bréfinu er beðist velvirðingar á þessum drætti og vonast til að veitt verði heildstætt svar við fyrirspurninni á næstu dögum.