141. löggjafarþing — 38. fundur, 20. nóv. 2012.
stjórnarskipunarlög.
415. mál
Virðulegi forseti. Ég er nú ekki með 111. gr. hér fyrir framan mig en það er engin heimild í þessari stjórnarskrá til að ganga í Evrópusambandið. Það yrði fyrst og fremst ákveðið hér og í þjóðaratkvæðagreiðslu af fólkinu og ákvæði er um það í þessari stjórnarskrártillögu hvernig það skuli gert.