141. löggjafarþing — 40. fundur,  22. nóv. 2012.

heilsutengd þjónusta.

[10:45]
Horfa

Guðrún Erlingsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. velferðarráðherra svör hans og vonast til að menn skoði þetta. Eins og velferðarráðherra benti á hafa 32% nýtt sér þessa þjónustu samkvæmt þeirri könnun sem gerð var.

Ég hef þá trú og þekki það sjálf að þetta virkar og hvet til þess að menn skoði það af heilum hug að niðurgreiða þessa þjónustu eins og aðra heilbrigðisþjónustu.