141. löggjafarþing — 40. fundur,  22. nóv. 2012.

opinber innkaup.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni, það gengur ekki upp ef stærri stofnanir hafa einhvern hagnað af því að dreifa vörum. Hins vegar er mér er mjög til efs að menn fari af stað með slíkt öðruvísi en í samráði við Ríkiskaup. En ég skal fara vandlega yfir málið og kanna hvað þarna er á ferðinni.