störf þingsins.
Frú forseti. Ég kem hingað upp undir liðnum störf þingsins til að ræða um störf þingsins og vinnubrögð hæstv. ríkisstjórnar.
Við lesum um það í blöðum í dag og heyrðum um það í fjölmiðlum í gær að ríkisstjórnarþingflokkarnir hafa fengið til umfjöllunar enn eitt frumvarpið til laga um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu. Fyrirsögn Fréttablaðsins í dag er: „VG hlynnt en Samfó efins.“
Þetta er sem sagt frumvarp um breytingar á stjórn fiskveiða, taka fjögur. Hvað er að gerast? Jú, stjórnarflokkarnir hafa ekkert lært. Ekkert samráð hefur verið haft við stjórnarandstöðuna frekar en fyrri daginn, ekkert samráð hefur verið haft við hagsmunaaðila frekar en fyrri daginn, ekkert samráð hefur verið haft við sérfræðinga frekar en fyrri daginn. En samkvæmt Fréttablaðinu herma heimildir að frumvarpið sé í grundvallaratriðum óbreytt frá því frumvarpi sem lagt var fram og ekki náðist að afgreiða, það hlaut ekki stuðning á síðasta þingi. Verið er að bítast um það í stjórnarflokkunum. Ég verð að segja að það eru skammarleg vinnubrögð. Eina ferðina enn á að viðhafa slík vinnubrögð. Ef þetta væri nú eina málið sem svo er ástatt um, en það er svo sannarlega ekki þannig. Þetta er nákvæmlega það sama og gerðist með rammaáætlunina. Þingflokkar stjórnarflokkanna og einstakir þingmenn sömdu sín á milli þannig að ekkert svigrúm var til að breyta neinu eða taka neinum rökum þegar málið er komið hingað inn.
Það sama er að gerast með stjórnarskrá lýðveldisins. Þar er verið að þröngva málinu í gegnum þingið, sýna stjórnarskrá lýðveldisins þá mestu óvirðingu sem hægt er að hugsa sér með því að veita nefndum þingsins frest til 10. desember til að koma með athugasemdir um einstaka kafla, (Forseti hringir.) 10. desember, í miðjum önnum þingsins fyrir jólahlé. Það eru skammarleg vinnubrögð, frú forseti, og þau verða að breytast.