141. löggjafarþing — 46. fundur,  4. des. 2012.

störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Mér finnst illa komið fyrir Alþingi Íslendinga, mér finnst sorglegt í hvaða stöðu við erum komin, við ráðum ekki við hlutverk okkar og höfum brugðist þeim sem kusu okkur. (VigH: … hætta?) Enginn getur breytt Alþingi nema við. Við höfum ályktað um að gera einmitt það. Í lok sumars 2010 ályktuðum við, öll samhljóma, með öllum greiddum atkvæðum meðal annars eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að brýnt sé að starfshættir þingsins verði teknir til endurskoðunar. Mikilvægt sé að Alþingi verji og styrki sjálfstæði sitt og grundvallarhlutverk.

Alþingi ályktar að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og leggur áherslu á að af henni verði dreginn lærdómur.

Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu.“

Þetta er okkar eigin ályktun. Við getum ekki haft hlutina svona, við verðum að komast upp úr þessum hjólförum og það skiptir engu máli hvernig hlutirnir voru einu sinni, það sem skiptir máli er hvernig þeir eru núna, hvað við þurfum að gera til að laga þá og hvernig við viljum hafa þá í framtíðinni.

Staðan núna er algjörlega óásættanleg og við þurfum öll að horfast í augu við þann vanda og taka á honum. Það breytir þessu enginn nema við.