141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[14:41]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég tel vanhugsað að setja Vífilsstaðaspítalann og bygginguna sem slíka á sölu og tel að ríkið þurfi aðeins að velta fyrir sér bæði byggingunni sjálfri og sögulegri skírskotun hennar. Ég leggst eindregið gegn því að þetta sé selt. (BirgJ: Heyr, heyr.)