ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég held að hæstv. ráðherra og meiri hlutinn þurfi að renna aftur yfir McKinsey-skýrsluna. Það er alveg rétt, og ég held að við séum alla vega mörg hver sammála um það, að auka þarf kraftinn í þekkingariðnaðinum, í þeim hluta. Við megum hins vegar ekki gleyma á hverju við höfum lifað, hvar þekkingin er mest, hvar okkur hefur gengið best og hvar er auðveldast að fá fjármagnið til að skila sér sem mest. Það er í sjávarútveginum, í sjávarútvegsklasanum, og í orkugeiranum. Núverandi stjórnvöld hafa ýtt frá sér og drepið niður allt sem þau mögulega gátu á öllu kjörtímabilinu.
62 störf hafa tapast í sjávarútveginum í haust vegna veiðigjaldsins. Munu aðgerðirnar sem voru kynntar í fjárlagafrumvarpinu í dag skapa þau 62 störf á næstu tveimur mánuðum? Það er einmitt það sem McKinsey-skýrslan segir. Við þurfum annars vegar að horfa til skammtíma, hvernig við getum aukið vöxtinn sem hraðast, og þá byggjum við auðvitað á þeim greinum þar sem þekkingin er mest og þar sem við stöndum okkur best. Hins vegar þurfum við til lengri tíma að fjárfesta í menntun, rannsóknum og þekkingu, ég er alveg sammála því, til þess að geta keppt á hinum alþjóðlega markaði, það tekur lengri tíma. Við þurfum að færa fólk í stórum stíl úr þeim geirum þar sem framleiðni er lítil. Það gerum við auðvitað ekki með því að segja því öllu upp og færa það á atvinnuleysisskrá heldur með því að skapa störf á þeim sviðum þar sem það er auðveldast, þ.e. á þeim sviðum þar sem okkur gengur hvað best, höfum mestu þekkinguna á og höfum sýnt á liðnum áratugum að okkur gengur mjög vel þar.
Varðandi fjárfestingu Icelandair upp á 180 milljarða á hún að koma til landsins 2018. Þeir, eins og við og þjóðin öll, trúa því að þá verði betri stjórn við völd.