141. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 550, um gjaldeyrisvarasjóð. Fyrirspurnin er frá Ásmundi Einari Daðasyni. Ástæða tafar er umfang fyrirspurnarinnar og biður ráðherra um lengri frest til að afla umbeðinna gagna.