141. löggjafarþing — 60. fundur,  21. des. 2012.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:04]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá forsætisráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 557, um málsvörn í dómsmálum gegn ríkinu og undirstofnunum þess, frá Lilju Mósesdóttur. Að höfðu samráði við Lilju Mósesdóttur óskar ráðherra eftir fresti til loka janúar til að svara þessari fyrirspurn.

Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 533, um skattálögur og höfuðstól íbúðalána, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.