141. löggjafarþing — 60. fundur,  21. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[20:34]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um 3. tölulið á þskj. 811 og þar segir: „Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á 96. kafla tollskrár í viðauka I við tollalög, nr. 88/2005: Tollskrárnúmerið 9619.0090 skiptist upp …“ og þá kemur prósenta um barnableiur og laust bleiufóður úr öðru en pappír og vatti, margnota, og svo annað.

Ég tel rétt að við samþykkjum þetta.