141. löggjafarþing — 61. fundur,  22. des. 2012.

loftslagsmál.

381. mál
[02:13]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Atli Gíslason) (U) (andsvar):

Frú forseti. Ég gleymdi að geta þess í upphafi að hv. þm. Mörður Árnason var málefnalegur svona fram undir það alsíðasta. Ég mun skoða þetta dæmi sem hann nefndi um efnalögin, fara betur yfir það núna, en ég get ekki hér í snöggu andsvari veitt nákvæmari svör yfir þetta, hvort það sé villa í áliti minni hlutans, en það er býsna gott álitið, sem er upp á 18 eða 19 síður, ef það er einungis einn hnökri sem hv. þingmaður hefur séð þar.