141. löggjafarþing — 70. fundur,  24. jan. 2013.

samkomulag við kröfuhafa Landsbankans.

[11:01]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég skal ekkert um það segja og ætla ekki að fullyrða neitt um það í þessum ræðustól. Þetta var gert að því er þetta atriði varðar. Ekki hefur reynt á það og ég hef ekki trú á að á það reyni vegna þess að allar aðgerðir eru almennar. Og gagnvart innlendum aðilum þá vil ég ekkert um það segja. Ég var fyrst að sjá þetta í morgun og vil því gefa mér tíma til að skoða málið.