141. löggjafarþing — 70. fundur,  24. jan. 2013.

skipun rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóða.

16. mál
[15:13]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Margrét Tryggvadóttir) (Hr) (andsvar):

Forseti. Ég er kannski að misnota andsvarsformið því þetta er eiginlega meðsvar. Þessu er ég hjartanlega sammála. Ég skil ekki hvernig á þessu stendur. Eins og þingmaðurinn veit tilheyri ég ekki þessum stjórnarmeirihluta, ég stóð ekki að þessum fjárlögum og greiddi þeim ekki atkvæði mitt fremur en hann, en það er sjálfstætt rannsóknarefni hvers vegna þingið fær ekki fé til að gera það sem þingið ákveður að gera.