141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

dómstólar o.fl.

12. mál
[16:29]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Mig langaði eiginlega að gefa meðsvar og fagna því að að þetta er komið svona langt áleiðis. Þetta er eitt af þeim málum sem ég fékk að halda utan um en var eins og mörgum málum rutt út af borðinu rétt fyrir þinghlé. Ég er mjög ánægð með að tekist hefur að ná þverpólitískri sátt um málið og að hægt var að koma á þessari mikilvægu réttarbót og langaði að nota tækifærið og þakka hv. þm. Álfheiði Ingadóttur fyrir hennar framlag til réttarbóta hérlendis.