141. löggjafarþing — 75. fundur,  30. jan. 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[17:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Valgerður Bjarnadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að nefndin mun starfa milli 2. og 3. umr. og þá verður álit Feneyjanefndarinnar rætt. Ef vilji þingmanna stendur til að gera það fyrr í nefndinni þá verður það gert, en ekki gegn vilja þeirra.