141. löggjafarþing — 76. fundur,  31. jan. 2013.

orð þingmanns í umræðu um störf þingsins.

[10:37]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S):

Forseti. Það er óþarfi að vera að karpa mikið um þetta mál. Ég minni á þá tillögu sem þáverandi hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson flutti um rannsókn á þessu máli öllu og ég tel einboðið að við munum flytja hana aftur og vænti þá, í ljósi þeirrar orðræðu sem hér hefur orðið, öflugs stuðnings við hana.