ástandið á Landspítalanum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en vil fá að bregðast við að því leyti að staðreyndin er sú að á Jaðri í Ólafsvík, hinu nýja glæsilega hjúkrunarheimili sem hefur verið byggt þar, hefur sveitarfélagið verið að taka inn sjúklinga umfram tíu rými og í raun og veru gert það á eigin kostnað. Það er mikilvægt að hafa það í huga. Við vitum auðvitað að brugðist hefur verið við ástandinu með því að fjölga hjúkrunarrýmum á sumum stöðum.
Í ljósi þess að sveitarfélagið hefur verið að taka inn fleiri sjúklinga en þau rými sem eru fyrir hendi gefa kost á, tíu rými samkvæmt ráðuneytinu en til eru tólf glæsileg rými þar sem ekki er verið að nýta tvö þeirra, hlýtur að vera eðlileg spurning til hæstv. ráðherra, þar sem þetta mál er búið að vera mjög lengi til umræðu milli sveitarfélagsins og stjórnvalda, hvort þess sé ekki að vænta og hvort hæstv. ráðherra muni ekki bregðast við því núna að bæta við tveimur rýmum á þetta heimili.