141. löggjafarþing — 80. fundur,  13. feb. 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[20:16]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Takk fyrir þetta. Ég er ánægð að heyra að hv. þingmaður setur umræðuna í sarpinn og ætlar að geyma ræðu mína sér í minni fyrir seinni tíma. Það er gott að heyra að hv. þingmaður tók til sín athugasemdirnar frá Pawel Bartoszek varðandi tímann vegna þess að ég tel að það sé mjög mikilvægt að hlustað sé eftir því sjónarmiði, ég tel að við séum sammála um það. Ég vonast þá til þess að hv. þingmaður beiti sér fyrir því að þessu verði breytt í þá veru, fari málið aftur í nefnd.