141. löggjafarþing — 84. fundur,  20. feb. 2013.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

155. mál
[16:57]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Mig langar til að halda áfram að útdeila kærleika í þessum sal og fagna því að við séum loksins að lögfesta þennan mikilvæga sáttmála og tek innilega undir með hv. þm. Helga Hjörvar um að við einhendum okkur í að gera hið sama um brýna sáttmála sem hér hafa beðið eftir lögfestingu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)