141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

álit framkvæmdastjórnar ESB um að verðtryggð lán séu ólögleg.

[13:50]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U):

Virðulegi forseti. Engin þjóð hefur farið í gegnum fjármálakreppu án þess að leyfa verðbólguskotinu sem alltaf fylgir í kjölfar banka- og gengishruns að éta upp verðmæti lána. Krafan um almenna leiðréttingu gengur styttra þar sem hún felur í sér að lánveitandinn og lántakandinn deili með sér kostnaðinum af verðbólguskotinu.

Við þeirri kröfu skuldsettra heimila gat hin svokallaða norræna vinstri stjórn ekki orðið þrátt fyrir kosningaloforð um að jafna byrðar fjármálakreppunnar. Verðtryggingunni var leyft að hækka höfuðstól lána og skuldsett heimili hvött til að leita réttar síns fyrir dómstólum. Ég varaði strax við dómstólaleiðinni og benti á að hún væri of tímafrek og tryggði ekki réttlæti meðal skuldsettra heimila.

Margir hafa misst heimili sín vegna gengistryggðra lána sem reyndust síðan ólögleg. Aðrir skrifuðu undir löglega lánasamninga og sitja uppi með gengistryggð lán sem ekki verða endurreiknuð.

Virðulegi forseti. Nú er niðurstöðu dómstóla beðið varðandi lögmæti verðtryggingarinnar. Dómstólar meta hvort verðtryggingin samræmist lögum um neytendalán og lögum um verðbréfaviðskipti sem banna afleiðulán til almennings. Á meðan beðið er niðurstöðu er verið að hirða eignir af fólki með verðtryggð lán í óskilum.

Virðulegi forseti. Við verðum að eyða óvissunni og óréttlætinu sem er að sundra samfélaginu. Tryggjum samstöðu í samfélaginu. Afnemum verðtrygginguna fyrir kosningar og leiðréttum forsendubrest lána með peningamillifærsluleiðinni.