141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

umræða um 2. dagskrármál.

[16:18]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði einungis að koma á framfæri sömu spurningu og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Það er rétt sem fram kom í örstuttri umræðu sem átti sér stað á síðasta fundi að þetta þingmál er á dagskrá fundarins, en að gefnu tilefni finnst okkur þingmönnum, sem áhuga höfum á að ræða þetta mál, rétt að spyrja forseta hvort til standi að ræða málið eins og því er skipað í dagskrána eða hvort því verði frestað.