141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

umræða um 2. dagskrármál.

[16:27]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég vil að gefnu tilefni upplýsa að það var sú sem hér stendur sem óskaði eftir því á fundi forseta með formönnum þingflokka í dag að umræðu um þetta tiltekna mál yrði frestað. Þar var ekki öðrum til að dreifa, hvorki ráðherrum né öðrum, það gerði ég sem formaður þingflokks Vinstri grænna, svo það sé ljóst.