141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 210/2012 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

564. mál
[22:06]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hæstv. utanríkisráðherra verður að virða mér það til vorkunnar að ég hafði ekki kynnt mér málið ítarlega fyrir umræðuna. Ég verð þó að segja að það er nokkur léttir að vita að um er að ræða breytingu sem ætti að vera til hagsbóta fyrir íslenskan iðnað. Ég velti hins vegar fyrir mér hvort eitthvað sérstakt sé í samningaviðræðunum um aðild Íslands að Evrópusambandinu sem kallar á að reynt sé að koma breytingunni í gegnum þingið á lokadögum þess við lok kjörtímabilsins.