141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

tollalög o.fl.

608. mál
[22:56]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Frumvarpinu er ætlað að framlengja þá aðgerð stjórnvalda sem áður hefur verið gripið til vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja. Lagt er til að hefðbundnum gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalda verði dreift á tvo gjalddaga á árinu 2013 eins og gert var á árinu 2011 og 2012.

Eins og áður er lagt til að fyrirkomulagið skerði ekki heimild til að færa til innskatts allan virðisaukaskatt viðkomandi tímabils þótt einungis hluti hans hafi verið greiddur.

Fjölgun gjalddaga á aðflutnings- og vörugjöldum hefur verið lögfest nokkrum sinnum áður og síðast með lögum nr. 18/2012, þar sem dreifingin var lögfest fyrir árið 2012. Verði frumvarpið að lögum hefur það engin áhrif á tekjur ríkissjóðs á árinu 2013 þar sem einungis er um að ræða tilfærslu í innheimtu innan ársins. Skil á gjöldunum ættu jafnvel að verða betri vegna þessa ívilnandi úrræðis fyrir atvinnulífið. Að því sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. og efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari.