141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[15:22]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég ætla að sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu eins og í öðrum atkvæðagreiðslum sem tengjast þessu frumvarpi nú eftir 2. umr. Ég skora á hv. þingmenn að lesa 9. gr. í heild. Þar er sett fram eitthvert mesta furðustjórnskipulag fyrir ríkisstofnun sem ég hef séð. Ég bið hv. þingmenn að kynna sé þetta áður en þeir greiða atkvæði.