141. löggjafarþing — 89. fundur,  6. mars 2013.

vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu þann 5. mars 2013, hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar, Meðferð umsókna og styrkja úr atvinnuþróunarsjóðum.