141. löggjafarþing — 89. fundur,  6. mars 2013.

sameining rannsóknarnefnda í rannsóknarnefnd samgönguslysa.

609. mál
[15:30]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það mál sem við greiðum atkvæði um núna er afleiðing af máli sem Alþingi hefur þegar samþykkt. Hér er um að ræða nokkurs konar bandorm, sem eru afleiddar breytingar á lagatextum sem undir liggja, og hér erum við því í raun ekki að greiða atkvæði um efnisatriði málsins heldur um bandorminn. Ég mun því greiða atkvæði með málinu eins og hinu málinu einnig.