141. löggjafarþing — 92. fundur,  8. mars 2013.

lengd þingfundar.

[11:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (REÁ: Að sjálfsögðu.) — Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta og verður þá hringt til atkvæðagreiðslu.