141. löggjafarþing — 92. fundur,  8. mars 2013.

tollalög o.fl.

608. mál
[11:17]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Helgi Hjörvar) (Sf):

Virðulegur forseti. Það mál sem hér liggur fyrir er gamall kunningi og var einnig flutt á síðasta löggjafarþingi. Það varðar einfalda ívilnun til þeirra sem standa eiga skil á aðflutningsgjöldum. Það er eindregin samstaða um málið í nefndinni. Að nefndarálitinu standa auk þess sem hér stendur hv. þm. Magnús Orri Schram, Skúli Helgason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Árni Þór Sigurðsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Pétur H. Blöndal, Lilja Mósesdóttir og Eygló Harðardóttir.

Nefndin mælir með því að frumvarpið verði samþykkt að lokinni þessari umræðu.