almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex mínútur í síðustu umferð.
Þingmenn utan flokka tala síðastir í hverri umferð og hafa fjórar mínútur. Röð flokkanna er þessi í öllum umferðum:
Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Hreyfingin.
Ræðumenn flokkanna eru:
Fyrir Sjálfstæðisflokk talar í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest., í annarri Kristján Þór Júlíusson, 4. þm. Norðaust., en í þeirri þriðju Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurk.
Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Árni Páll Árnason, 1. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, í annarri, en í þriðju umferð Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykv. s.
Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurk., í annarri, en í þriðju umferð Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurk.
Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í annarri Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykv. n., en Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvest., í þriðju umferð.
Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk., í annarri umferð talar Þór Saari, 9. þm. Suðvest., og Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s., í þeirri þriðju.
Ræðumenn utan flokka eru: Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest., talar síðastur í fyrstu umferð, Jón Bjarnason, 2. þm. Norðvest., talar síðastur í annarri umferð og Róbert Marshall, 8. þm. Suðurk., talar síðastur í þriðju umferð.