141. löggjafarþing — 102. fundur,  13. mars 2013.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:36]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Frú forseti. Góðir Íslendingar. Það dýrmætasta sem nokkur maður getur átt er vonin. Vonin um betra líf, betra samfélag, betri heim. Það versta sem nokkur getur gert er að taka þá von frá manninum. Þegar vonin er brostin er einnig horfin getan til að breyta, til að bæta, til að byggja upp.

Þegar ég hóf afskipti af stjórnmálum átti ég mér von. Von sem byggði á grunngildum samvinnustefnunnar um lýðræði, persónufrelsi, jafnræði og samfélagslega ábyrgð. Von um að ég gæti lagt mitt af mörkum við að byggja upp samfélag sem byggði á þeim gildum. Þegar efnahagur landsins hrundi blossaði upp hjá mér vonin um að nú væri tækifæri til að gera róttækar breytingar. Hjálpa íslenskum almenningi að brjótast úr hlekkjum verðtryggingar, skulda og vonleysis.

Sú von lifir enn og ég finn að hún lifir enn hjá stórum hluta landsmanna. Þeim sem ekki hafa enn misst vonina á að við getum byggt upp nýtt og betra samfélag úr rústum hins gamla.

Úrtölumenn eru á hverju strái. Úrtölumenn sem gera sitt besta til að slökkva vonarglætuna í brjósti almennings. Úrtölumenn sem vita það eitt að ekkert er hægt að gera, engu er hægt að breyta. Þar eru verðtrygging, skuldir og höft meitluð í stein. Lögmál sem ekki má brjóta.

Við framsóknarmenn höldum enn í vonina. Við látum ekki segja okkur að ekkert frekar sé hægt að gera fyrir heimilin í landinu. Við látum ekki segja okkur að ekkert frekar sé hægt að gera til að efla atvinnulífið. Við látum ekki segja okkur að Íslendingar geti ekki haft stjórn á sínum eigin efnahag.

Við eigum okkur von um betra samfélag fyrir Ísland og Íslendinga. Það sem meira er, við höfum margoft sýnt fram á hvernig sú von okkar getur orðið að veruleika.

Til þess að sú von megi rætast þurfum við að hafa kjark og þor til að takast á við þann þríhöfða þurs sem ógnar íslenskum heimilum. Við höfum sett upp margþætta sóknaráætlun sem miðar að því að leggja þann þurs sem hamlar okkur för inn í framtíðina.

Við þurfum að taka á uppsafnaða skuldavandanum. Þeim gríðarlega forsendubresti sem hefur haldið heimilunum í herkví. Þeim forsendubresti sem ekki var leiðréttur eftir hrun og hefur haldið áfram að hlaðast upp svo heimilin standa vart undir honum.

Við þurfum að taka á verðtryggingunni til að rjúfa þann vítahring verðbólgu og skuldasöfnunar sem sligar heimilin í landinu. Við þurfum að vinda ofan af sjálfvirkum vísitöluhækkunum og koma í veg fyrir að fortíðarvandinn verði að framtíðarvanda.

Við þurfum að byggja til framtíðar. Til þess þurfum við að efla atvinnulífið því að besta leiðin til að tryggja vöxt og velferð til frambúðar er að tryggja næga atvinnu. Án atvinnu verður hvorki vöxtur né velferð.

Stefna framsóknarmanna er einföld. Takist okkur að leggja þennan þurs eru okkur allir vegir færir. Við höfum von en við höfum líka áætlun um hvernig vonin getur orðið að veruleika. Hafi einhver betri hugmyndir að því marki erum við opin fyrir þeim en markmiðið er skýrt: Þursinn verður að fella.

Við höfum talað fyrir því í fjögur ár. Við munum tala áfram fyrir því næstu fjögur ár og við munum hrinda því í framkvæmd fáum við styrk til þess í næstu kosningum.

Við finnum traust og við finnum stuðning meðal þjóðarinnar. Við sjáum vonina kvikna í augum fólks þegar við kynnum stefnu okkar og áætlanir til framtíðar. Við munum ekki láta úrtölumenn slökkva þá von.

Úrtölumenn sem telja okkur óvin númer eitt af því að við þorum að taka okkur stöðu með heimilunum í landinu gegn auðvaldinu. Úrtölumenn sem líta á skuldaklafa og verðtryggingu sem óbreytanlegan hluta íslensks samfélags. Úrtölumenn sem hafa það svar eitt fyrir fjölskyldurnar, sem um hver mánaðamót þurfa að velta fyrir sér hverri krónu, að svona hafi það alltaf verið og svona muni það alltaf verða. Úrtölumenn sem yppa öxlum þegar enn eitt fyrirtækið leggur upp laupana og enn einn hjúkrunarfræðingurinn pakkar búslóðinni í gám og flytur til Noregs.

Við framsóknarmenn vitum að slagurinn er ekki auðveldur. Hann hefur ekki verið auðveldur. Hann verður ekki auðveldur. En við höfum von og sú von getur ræst. Með markvissri sókn gegn skuldavanda heimilanna, gegn vítahring verðtryggingar og gegn stöðnun í atvinnulífi getum við brotist út úr þeirri herkví sem íslensk heimili og fyrirtæki hafa verið í.

Kannski finnst einhverjum við of bjartsýn og vissulega erum við bjartsýn, en við höfum líka trú á íslenskt samfélag og getu þjóðarinnar til að vinna sig út úr vandanum fái hún tækifæri til þess. Til þess þarf þjóðin að hafa von og hún þarf að hafa trú á að vonin geti ræst. Við framsóknarmenn teljum að við höfum enn tækifæri til að láta þá von rætast. Tækifæri sem við megum ekki láta okkur ganga úr greipum.

Í kosningunum í vor höfum við tækifæri til að kjósa um þá von. Von um betra Ísland. Von um aðgerðir fyrir heimilin. Von um afnám verðtryggingarinnar. Von um öflugra atvinnulíf til hagsbóta fyrir okkur öll.

Von um framsókn í íslensku samfélagi.