141. löggjafarþing — 104. fundur,  15. mars 2013.

afgreiðsla mála á dagskrá.

[14:53]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég hvet til þess að umræðunni sem hér hefur hafist, að því er mér skilst um 10. dagskrármálið, verði frestað og gengið til þess að ræða mál sem þar eru á undan á dagskránni, þá á ég við 7. og 8 dagskrárlið, þar sem ekkert er því til fyrirstöðu að taka þau mál á dagskrá.