141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá 5. þm. Norðaust., Þuríði Backman, um að hún geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Eins og tilkynnt var á vef Alþingis tók því sæti á Alþingi í gær 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Bjarkey Gunnarsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.