141. löggjafarþing — 110. fundur,  25. mars 2013.

velferð dýra.

283. mál
[14:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Ólína Þorvarðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég skil mjög vel sjónarmið hv. þm. Margrétar Tryggvadóttur og skil alveg hvað hún er að fara. En ég velti fyrir mér hvers vegna hún leggur til þessar tilteknu greinar og hvort hún óttast ekki eða hafi hugleitt að það kunni að valda þeirri túlkun á lögunum að ráðherra sé þá ekki bundinn af öðrum greinum löggjafarinnar, fyrst það er sérstaklega tekið fram að hann skuli bundinn af þessum tveimur við samningu reglugerðar.